Annað:
Stutt lýsing:
Stórvaxin gamaldags runnarós 2,5-3 m. hár og hentar best sem klifurrós
hérlendis. Blöð blágræn og líkjast bjarmarós, fær sjaldan haustliti hér. Blóm eru tvöföld til hálffyllt bleik en ilma lítið. Getur verið mjög blómsæl, þó breytilegt eftir árum. Blómstrar frá miðjum júlí - ágúst á Íslandi. Fáar nýpur vínrauðar en ná sjaldnast að fullþroskast hér. Má nota sem veggrós. og getur þá orðið hærri.
Athugasemd:
Mjög harðgerð rós en mis blómviljug. Getur fengið mjöldögg.
|